Mandriva Linux

Uppsetninga-leiðbeiningar

Vélbúnaðarkröfur

Að setja upp Mandriva Linux er oftast eins einfalt og að setja uppsetningardiskinn í geisladrifið, og endurræsa tölvuna. Vinsamlega sjá nánar liður 1.

ATHUGIÐ:


Hér að neðan er listi yfir mismunandi aðferðir við að setja upp Mandriva Linux:

  1. Ræsa beint frá geisladiski
  2. Búa til ræsidiskling með Windows
  3. Aðrar uppsetningaraðferðir


1. Ræsa beint frá geisladiski

Uppsetningargeisladiskurinn er ræsanlegur. Í flestum tilfellum er nægilegt að setja diskinn í diskdrifið og ræsa tölvuna. Fylgið síðan leiðbeiningum á skjánum: sláið á [Enter]-hnappinn til að hefja uppsetningu, eða sláið á [F1] til að fá ítarlegri upplýsingar.

ATHUGIÐ:

Á sumum fartölvum er ekki hægt að ræsa upp frá geisladiski. Í þeim tilfellum verður þú að búa til ræsidiskling. sjá nánar í liður 2.

[efst á þessa síðu]


2. Búa til ræsidiskling með Windows

Ef tölvan þín getur ekki ræst upp frá geisladiski þá verður þú að búa til ræsidiskling undir Windows á eftirfarandi hátt:

Til að byrja uppsetninguna:

[efst á þessa síðu]


3. Aðrar uppsetningaraðferðir

Ef fyrrnefndar aðferðir duga ekki eða þú vilt setja upp á annan hátt (ef þú t.d. vilt setja upp yfir net eða setja upp frá pcmcia-tæki eða ...), þarft þú líka að búa til ræsidiskling :

Hér er listinn af ræsiímyndum:

cdrom.img Uppsetning frá CD-ROM
hd_grub.img uppsetning frá diski (frá Linux-, Windows-, eða ReiserFS-skráarkerfi)
þú getur stillt það fyrir þitt kerfi á: http://qa.mandriva.com/hd_grub.cgi
network.img uppsetning frá ftp/nfs/http
ATHUGIÐ: þú verður að setja inn network_drivers.img í disklingadrifið þegar beðið er um
pcmcia.img uppsetning frá pcmcia-tæki (aðvörun: flest pcmcia-netkort eru nú studd beint frá network.img)

Þú getur einnig brennt boot.iso á geisladisk og notað hann til að ræsa. Hann styður allar uppsetningaraðferðir: geisladisk, net, og harðan disk.

[efst á þessa síðu]


Þú getur einnig notað texta-ham ef þú af einhverri ástæðu ert í vandræðum með grafíska uppsetningu. Til að nota hann ýttu á [F1] á upphafsskjánum, sláðu síðan inn text.

Ef þú þarft að bjarga uppsettu Mandriva Linux kerfi, settu þá inn uppsetningar-geisladiskinn (eða samsvarandi ræsidiskling), ýttu á [F1] á Mandriva Linux uppsetningarskjánum og sláðu síðan inn rescue.

Sjá http://www.mandrivalinux.com/drakx/README ef þú þarft nánari tækniupplýsingar.

[efst á þessa síðu]


Hér að neðan eru aðalþrep uppsetningarinnar:

  1. Setjið inn uppsetningar-geisladiskinn (eða ræsidiskling ef þarf) og ræsið tölvuna aftur.
  2. Ýtið á [Enter] þegar Mandriva Linux-ræsiskjárinn birtist og fylgið nákvæmlega leiðbeiningunum.
  3. Þegar uppsetningunni er lokið fjarlægið geisladiskinn þegar honum er skotið út (og einnig disklinga ef þeir voru notaðir); tölvan mun nú endurræsa. Ef hún gerir það ekki endurræsið hana handvirkt.
  4. Mandriva Linux mun nú ræsa. Eftir ræsingu getur þú skráð þig inn á vélina sem sá notandi sem þú skilgreindir í uppsetningarferlinu eða sem "root".

Áríðandi athugasemd:

"root"-notandinn gefur þér ótakmarkaðan aðgang að linux kerfinu þínu. Notaðu hann ekki til annars en að stilla eða stýra Linux. Notaðu venjulegan notanda-aðgang til allmennra aðgerða, notendur getur þú sett upp með "userdrake" tólinu, eða með skipunum "adduser" og "passwd".

Gangi þér vel með Mandriva Linux!

[efst á þessa síðu]


Til að leita eftir aðstoð, athugaðu etirfarandi: